12. mars 2010 | 18:07:26

Hún hefur hlotið nafnið MÍA - Ævintýrið heldur áfram

Við þökkum frábæra þátttöku í Nafnasamkeppni Freyju fyrir Páskaævintýri Freyjuheimsins. Okkur hafa borist feikinóg af frábærum uppástungum og tillögum undanfarið, og höfum varla haft undan.

En eins og við vissum öll var bara eitt rétt nafn á þessa exótísku refastelpu: Við bara vissum ekki hvað það var fyrr en núna.

Það var Benedikt Blöndal Ásgeirsson sem að fann nafnið og gaf henni það, og hlýtur að launum gómsæta páskaeggjaveislu fyrir alla fjölskylduna.

Sælgætisgerðin Freyja vill gefa öðrum þátttakendum sem sendu inn nafnið Mía glaðning og verða nánari upplýsingar sendar á alla vinningshafa fljótlega.

Freyja bíður Míu velkomna í hópinn

Kraftur
Hreysti
Buffalo spilaborg