02. júlí 2010

Nýtt súkkulaði frá Freyju.

Freyja hefur sett á markað mjólkursúkkulaði sem heitir Hreint. Stykkið er 40 gr.

08. apríl 2010

Sigurvegarar páskanna!

Fyrir utan að við erum náttúrulega öll sigurvegarar, þá tilkynnist hér með hverjir eru hinir fundvísu fjársjóðsleitarar í páskaleik Freyju.

En eins og alþjóð ætti að vera orðið ljóst fann fólk fjársjóðskort með dulmálskóða inn í Freyjupáskaegginu sínu, og gat skráð sig í pott og unnið glæsilega vinninga frá Tölvulistanum með því að slá téðan kóða inn hér á síðunni.

Hinir lukkulegu eru:

Guðrún Stefanía vann firnaflotta fartölvu, með lykilinn 6DAD9QM3VQJ. Ó, Guðrún, hvað hin fallvalta lukka brosti við þér!

Alexandra Sigurbjörg Þórðardóttir vann stafræna myndavél, með lykilnn 3KUJ4GLP3SE. Hamingjuóskir!

Björn vann Mp3 spilara, með lykilinn XPMX7PYBDBV. Til hamingju!

Thelma Björk Sverrisdóttir vann Mp3 spilara, með lykilinn 5D3T2XR89JMM. Til hamingju!

Vinningshafar: Frá og með fimmtudeginum 8. Apríl er ykkur frjálst að líta við í höfuðstöðvum Freyju, Vesturvör 36, Kópavogi , og heimta góssið.

MUNIÐ BARA AÐ TAKA FJÁRSJÓÐSMIÐANN MEÐ YKKUR!

Það er svo á þessum nótum sem að Freyja þakkar öllum þátttökuna og páskaeggjaátið, auk þess sem að við vonum innilega að þið hafið það gott.


12. mars 2010

Hún hefur hlotið nafnið MÍA - Ævintýrið heldur áfram

Við þökkum frábæra þátttöku í Nafnasamkeppni Freyju fyrir Páskaævintýri Freyjuheimsins. Okkur hafa borist feikinóg af frábærum uppástungum og tillögum undanfarið, og höfum varla haft undan.

En eins og við vissum öll var bara eitt rétt nafn á þessa exótísku refastelpu: Við bara vissum ekki hvað það var fyrr en núna.

Það var Benedikt Blöndal Ásgeirsson sem að fann nafnið og gaf henni það, og hlýtur að launum gómsæta páskaeggjaveislu fyrir alla fjölskylduna.


22. febrúar 2010

Nýtt próteinstykki

Freyja ehf. er komin með á markað nýtt próteinstykki sem heitir Styrkur og er með súkkulaðibragði. Þetta er viðbót við próteinlínuna , þannig að nú eru stykkin orðin 3 Hreysti , Kraftur og Styrkur.

Kraftur
Hreysti
Buffalo spilaborg