Baileys-ís
6 eggjarauður
1 bolli púðursykur
½ dl Baileys
200-300 g Valencia m/ núggati og hnetum
½ dl rjómi
1 bolli púðursykur
½ dl Baileys
200-300 g Valencia m/ núggati og hnetum
½ dl rjómi
Blandað saman og sett í frysti ( eggjahvíturnar má einnig nota, þá verður ísinn meiri og léttari).
Ljúffeng konfektsósa
200 g Valencia súkkulaði m/ núggati og hnetum
100 g Freyju suðusúkkulaði
3 dl rjómi
100 g Freyju suðusúkkulaði
3 dl rjómi
Hráefnið sett í pott, hrært saman við vægan hita, látið malla í 20 mín.
Freyju rískaka
Makkarónubotnar:
7 eggjahvítur
490 g flórsykur
270 g möndlur, fínt rifnar
200 g ríssúkkulaði, fínt saxað
7 eggjahvítur
490 g flórsykur
270 g möndlur, fínt rifnar
200 g ríssúkkulaði, fínt saxað
Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið sykri og möndlum varlega út í svo úr verði eins konar makkarónumassi. Síðan er ríssúkkulaðið sett saman við. Bakist í u.þ.b. 20 mínútur við 160 ° C. Óþarfi er að baka kökubotnana í móti, allt eins má setja massann með skeið á venjulega bökunarplötu og búa þar til hæfilega stóra botna. Uppskriftin nægir í sex botna, eða þrjár kökur, heldur minni en hefðbundna tertubotna.
Kókos mousse
250 g kókosmjólk, helst fryst
50 g sykur
3 eggjarauður
6 g matarlím
60 g grófur kókos
200 dl hálfþeyttur rjómi
Jarðarber
50 g sykur
3 eggjarauður
6 g matarlím
60 g grófur kókos
200 dl hálfþeyttur rjómi
Jarðarber
Kókosmjólk og sykur soðið saman. Eggjarauðurnar settar út í og það hrært í. Bræðið matarlímið og setjið út í og um leið er kókosnum bætt í. Hrærið saman. Þegar blandan er orðin fingurköld, u.þ.b. 35°C, er hálfþeyttum rjóma bætt saman við. Geymið í kæli þar til kökubotnarnir eru settir saman. Þá er kreminu sprautað á botninn milli jarðarberjanna. Þegar kakan er sett saman er fallegt og gott að hafa jarðarber á milli botnanna. Þau eru skorin í tvennt og raðað meðfram kanti neðri botnins og síðan í hring inni á miðjum botni. Fylla má á milli jarðarberjanna með þeyttum rjóma eða kremi og leggja síðan efri botninn ofan á allt saman. Hægt er að skreyta kökuna með balsamik ediki.
Freyju Koníaksterta
500 gr rjómi
6 stk eggjarauður
75 gr sykur
1 ¼ dl vatn
½ dl koníak (eftir smekk)
100 gr Freyju Súkkulaðispænir
3 stk Koníaksbrauð
6 stk eggjarauður
75 gr sykur
1 ¼ dl vatn
½ dl koníak (eftir smekk)
100 gr Freyju Súkkulaðispænir
3 stk Koníaksbrauð
Stífþeytið rjómann. Vatn og sykur soðið saman í sýróp í potti. Eggjarauðurnar settar í skál og sýrópinu hellt varlega yfir. Píska kröftuglega saman þangað til eggjablandan er orðin að léttum massa. Þegar massinn hefur pískast kaldur er stífþeyttum rjómanum blandað saman við. Kökubotn stunginn út með springformi og ísblöndunni hellt ofan á. Hakkið Freyju Koníaksbrauð og Spænir og leggið ofan í ísblönduna og frystið.
Freyju súkkulaðimousse
150 gr Freyju suðusúkkulaði
50 gr kaffi (tilbúið)
4 stk eggjarauður
50 gr sykur
2 dl rjómi- stífþeyttur
4 stk eggjahvítur
30 gr sykur
50 gr kaffi (tilbúið)
4 stk eggjarauður
50 gr sykur
2 dl rjómi- stífþeyttur
4 stk eggjahvítur
30 gr sykur
Stífþeytið rjómann og kælið. Freyju suðusúkkulaði og kaffi brætt saman í potti. Stífþeytið saman eggjarauður og sykur í hrærivélaskál og blandið saman við súkkulaðiblönduna þegar hún er orðin vel köld. Stífþeyttum rjómanum blandað saman við með sleikju. Að síðustu eru eggjahvítur og sykur stífþeytt saman og blandað varlega saman við. Framreitt í glösum eða litlum skálum. Skreytt með ávöxtum, súkkulaði eða rjóma.
Freyju kókosmakkarónur
200 gr kókosmjöl
2 dl sykur
2 stk eggjahvítur
1 stk egg
Skreyting: 75 gr Freyju bitar
2 dl sykur
2 stk eggjahvítur
1 stk egg
Skreyting: 75 gr Freyju bitar
Blandið öllum hráfnunum saman í potti. Hrærið efnunum saman við vægan hita þar til blandan er orðin heit. Notið teskeið til að búa til smá dropa sem settir eru á bökunarpappír. Bakið við 200°C í u.þ.b. 12 mínútur eða þar til makkarónurnar eru orðnar ljósbrúnar. Kælið. Bræðið Freyju bitana í vatnsbaði. Að lokum er makkarónubotnunum dýft í súkkulaðibaðið.
Freyju konfekt
300 gr Valencia mjólkursúkkulaði
1 ½ dl rjómi
Amaretto líkkjör
1 ½ dl rjómi
Amaretto líkkjör
Hitið rjómann að suðu og hellið yfir hakkað mjólkursúkkulaðið. Bragðbætið með Amaretto líkjöri. Kælið. Mótið kúlur og veltið þeim upp úr ristuðum hesliflögum. Til að auka fjölbreytileika má einnig notast við aðrar tegundir Valencia mjólkursúkkulaðis s.s. með hnetum og núggat, með hnetum og rúsínum eða með rommi og rúsínum.
Freyju romm- og rúsínuís
½ dl rjómi
2 stk egg
2 stk rauður
70 gr sykur
½ dl dökkt romm
300 gr Valencia mjólkursúkkulaði með rommi og rúsínum.
2 stk egg
2 stk rauður
70 gr sykur
½ dl dökkt romm
300 gr Valencia mjólkursúkkulaði með rommi og rúsínum.
Rjómi stífþeyttur og síðan kældur. Stífþeytið saman eggjum, rauðum og sykri. Blandið eggjablöndunni út í rjómann með sleif og bragðbætið með dökku rommi. Hakkið Valencia mjólkursúkkulaði með rommi og rúsínum og blandið saman við. Hellið ísblöndunni í form og frystið.




















