BOLLUSÆLA

INNIHALD

  • 40 g mjólk

  • 70 g vatn

  • 50 g smjör

  • 1 tsk. sykur

  • 80 g sterkt hveiti/brauðhveiti

  • 2-3 egg

  • 1/4 tsk. salt

AÐFERÐ

  1. Byrjið á að hita mjólkina, vatnið, smjörið og sykurinn upp að suðu.

  2. Bætið hveitinu saman við og hrærið stanslaust þar til filma myndast á botninum á pottinum og deigkúla fer að myndast úr deiginu. Mikilvægt er að nota brauðhveiti svo bollurnar falli ekki og haldi formi. Deigið á að losna vel frá hliðum pottsins þegar það er tilbúið.

  3. Færið deigið í hrærivélaskál og hrærið það þar til það er orðið volgt og þið getið snert það án þess að finna hita.

  4. Hrærið saman eggjum og salti til að brjóta upp eggin og blandið þeim vel saman við saltið.

  5. Bætið eggjunum saman við í nokkrum skömmtum og hrærið vel inn á milli. Hrærið þar til deigið er ekki lengur stíft en heldur þó enn þá formi. Þegar það lekur af sleifinni í eins konar V-formi þá er það tilbúið.

  6. Sprautið deiginu á pappírsklædda plötu með góðu millibili.

  7. Stillið ofninn á 220°C.

  8. Þegar ofninn er tilbúinn eru bollurnar settar inn í ofninn og hitinn lækkaður í 190°C í 15 mínútur.

  9. Eftir 15 mínútur er hitinn lækkaður í 170°C og bakaðar áfram í 15-20 mínútur eða þar til þær eru gullinbrúnar og búnar að mynda góða skorpu að utan.

  10. Skerið bollurnar þegar þær hafa kólnað, fyllið með góðri fyllingu, þeyttum rjóma og toppið með dýrindis suðusúkkulaði frá Freyju.

Previous
Previous

Súkkulaðimús | Sterkur Djúpur

Next
Next

Sörur