DRAUMA BOLLA
INNIHALD
Vatnsdeigsbollur:
40 g mjólk
70 g vatn
50 g smjör
1 tsk sykur
80 g hveiti
2-3 egg
1/4 tsk salt
Súkkulaðikaramella:
280 g sykur
310 g rjómi
¼ tsk salt
80 g smjör
60 g Freyju suðusúkkulaði
Annað:
200 g Freyju Suðusúkkulaði
1 poki Freyju draumaabitar
500 ml rjómi
1 poki Freyju djúpur kurl
AÐFERÐ
Byrjið á að hita mjólkina, vatnið, smjörið og sykurinn upp að suðu.
Bætið hveitinu saman við og hrærið stanslaust þar til filma myndast á botninum á pottinum og deigkúla fer að myndast úr deiginu. Mikilvægt er að nota brauðhveiti svo bollurnar falli ekki og haldi formi. Deigið á að losna vel frá hliðum pottsins þegar það er tilbúið.
Færið deigið í hrærivélaskál og hrærið þar til deigið er orðið volgt og þið getið snert það án þess að finna hita.
Hrærið saman eggin og saltið til að brjóta upp eggin og blanda þeim vel saman við saltið.
Bætið eggjunum saman við í nokkrum skömmtum og hrærið vel inn á milli. Hrærið þar til deigið er ekki lengur stíft en heldur þó enn þá formi. Þegar það lekur af sleifinni í einskonar V formi þá er það tilbúið.
Sprautið deiginu á pappírsklædda plötu með góðu millibili.
Stillið ofninn á 220*C. Þegar ofninn er tilbúin eru bollurnar settar inn í ofninn og hitinn lækkaður í 190*C í 15 mínútur. Eftir 15 mínútur er hitinn lækkaður í 170*C og bakaðar áfram í 15-20 mínútur eða þar til þær eru gullinbrúnar og búnar að mynda góða skorpu að utan.
Búið næst til karamelluna en þá byrjið þið á að brúna sykur í potti. Leyfið honum að bráðna alveg en passið að hann fari ekki að brenna. Bætið rjómanum saman við í mjórri bunu og passið að hræra vel á meðan. Þegar karamellan hefur þykknað er smjörinu, saltinu og súkkulaðinu bætt saman við og brætt þar til allt er komið vel saman.
Þeytið þar næst rjómann. Saxið heilan poka af draumabitum og setjið út í rjómann.
Skerið nú bollurnar til helminga, setjið karamellu í botninn. Fyllið bolluna með rjóma og setjið djúpur kurl yfir áður en þið lokið. Setjið brætt Freyju suðusúkkulaði ofan á lokið á bollunni og njótið!

