
SÆLGÆTISGERÐIN
OKKAR
Freyja ehf. er elsta starfandi sælgætisgerð á Íslandi, stofnuð umbrotaárið 1918. Freyja er sælgætisgerð Íslendinga og framleiðir söguleg sælgæti undir nokkrum af ástsælustu vörumerkjum landsins sem eru Rís, Draumur, Djúpur, Mix og Freyju súkkulaði. Eftir meira en heila öld af sælgætisframleiðslu endurspeglar saga og andi Freyju þjóðaranda Íslendinga sem einkennist af íslenskri bjartsýni.
Bragð og gæði eru höfð í hávegum hjá Freyju, það er öllum fimmtíu starfsmönnum félagsins kappsmál að framleiða og markaðssetja sælgæti sem kallar fram bragðgóðar íslenskar minningar. Hvort sem það er fyrir íslenskan markað eða til útflutnings þar sem sælgætið frá Freyju er í stöðugri sókn.
Nýsköpun og vöruþróun Freyju er ætluð að stuðla að varanlegum vexti og er það markmið að vörunýjungar verði hluti af fleiri gleðistundum, skemmtilegum hefðum og góðum minningum hjá þjóðinni.
Vörumerki Freyju
Fjöldinn allur af þekktustu vörumerkjum íslensks sælgætis er framleiddur af Freyju.
Vörur eins og Draumur, Rís, Djúpur, Mix, Möndlur, Staur, Hrís og Freyju rjómakaramellur.

Samfélagsmiðlar

Baksturslína Freyju í samstarfi við Elenoru Rós
Skapaðu bragðgóðar minningar með Freyju bakstri. Baksturslínan samanstendur af öllu því besta í baksturinn. Við höfum fengið með okkur í lið Elenoru bakara með meiru sem hefur meðal annars þróað ljúffengar uppskriftir í samstarfi við Freyju sem finna má hér að neðan. Elenora starfar í einu fremsta bakaríi London og er þar að auki metsöluhöfundur.
Sjá allar uppskriftir
Haustlegar Pavlour
Besta Súkkulaðikakan
Heitt Freyju Súkkulaði

HAFA SAMBAND
Sendu okkur línu með því að fylla formið eða senda okkur tölvupóst á [email protected] eða síma 540-4500
Allar styrktarbeiðnir eru afgreiddar í gegnum umsóknarformið hérna: