FRÖNSK SÚKKULAÐIKAKA
MEÐ FREYJU SÚKKULAÐI MEÐ SALTKARAMELLU OG RÍSKÚLUM
INNIHALD
Kaka
4 egg
210 g sykur
200 g smjör
100 g Freyju Suðusúkkulaði
100 g Freyju Súkkulaði með Saltkaramellu & Rískúlum
80 g hveiti
Mascarpone súkkulaðikrem
220 g mascarpone
100 g púðursykur
60 g kakó
300 ml kaldur rjómi
AÐFERÐ
Frönsk súkkulaðikaka
Forhitið ofninn í 180°C blástur.
Bræðið saman Suðusúkkulaði, Saltkaramellu & Rískúlu súkkulaði og smjör við vægan hita. Leyfið blöndunni að kólna.
Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós.
Blandið hveitinu saman við eggjablönduna og hrærið varlega saman.
Bætið súkkulaðiblöndunni við og hrærið varlega saman við með sleif.
Hellið deiginu í pappírsklætt form og bakið í 30 mínútur. Gott er að miða við 23 cm form.
Mascarpone súkkulaðikrem
Búið til kremið á meðan kakan kólnar. Byrjið á að þeyta saman mascarpone, púðursykur og kakó í u.þ.b 3 mínútur. Bætið næst rjómanum saman við og þeytið áfram þar til þið eruð komin með sömu áferð og á léttþeyttum rjóma, ætti ekki að taka meira en tvær mínútur. Varist að ofþeyta rjómann, betra er að þeyta minna en meira.
Setjið kremið á kökuna og skreytið fallega.