Páska ostakaka
Páska ostakaka sem minnir á bragðaref og inniheldur allt sem íslendingar elska, lakkrís, hindber og súkkulaði🐣🍫🍰 Einföld, létt, fersk og ómótstæðileg sælkera ostakaka þar sem hin ómótstæðilega tvenna, hindber og lakkrís mætast og gera hinn fullkomna páska dessert🤤💫
INNIHALD
Botn:
- 200 g digestive kex
- 100 g smjör, brætt
Fylling:
- 400 g rjómaostur
- 90 g flórsykur
- Börkur af 2 sítrónum
- 1 tsk vanilludropar
- 300 ml rjómi
- 150 g frosin hindber
- 150 g Freyju djúpur kurl
- 150 g Freyju súkkulaðispænir
Súkkulaðiganache (má sleppa):
- 150 ml rjómi
- 100 g dökkt Freyju suðusúkkulaði
AÐFERÐ
1. Myljið kex fínt og blandið saman við bráðið smjör. Þrýstið blöndunni í botninn á laudbotna formi og kælið í 15–20 mínútur.
2. Hrærið saman rjómaosti, sítrónuberki, vanilludropum og flórsykri þar til silkimjúkt.
3.Bætið rjómanum varlega saman við og þeytið þar til þið fáið mjúkar toppa, varist að ofþeyta.
4. Bætið hindberjum, djúpurkurli og súkkulaðispæninum út í og blandið létt saman.
5. Hellið fyllingunni yfir botninn og sléttið yfirborðið. Kælið í frysti í að minnsta kosti 2–3 klst. (eða í ísskáp þar til stífnar vel).
6. Næst skuluð þið undirbúa súkkulaði ganache. Hitið rjóma þar til hann er rétt að suðu kominn. Hellið yfir súkkulaðið og látið standa í 1–2 mínútur. Hrærið þar til slétt og glansandi. Leyfið blöndunni að kólna vel í kæli áður en henni er hellt yfir kökuna.
7. Hellið ganache yfir kalda kökuna og leyfið að storkna létt. Skreytið fallega eftir smekk — t.d. með Freyju rís eggi eða páska djúpum

