Hin fullkomna banoffee pæ
með súkkulaði-karamellu með suðu-súkkulaðii 🍫
Sölt súkkulaðikaramellan, sem stendur alltaf fyrir sínu, ásamt sætum bönunum, léttum mascarpone-rjóma og stökkum botni,
gerir þennan klassíska eftirrétt (með smá tvisti) algjörlega fullkominn. 🫶
INNIHALD
Tart-skelin:
250 g hveiti
125 g smjör
70 g sykur
2 eggjarauður
5 ml vatn
Salt
Súkkulaðikaramella:
280 g sykur
310 g rjómi
¼ tsk. salt
80 g smjör
60 g Freyju suðusúkkulaði
3 stk. bananar, smátt skornir
Mascarpone-rjómi:
200 g mascarpone-rjómaostur
60 g flórsykur
200 g rjómi
Dass af vanillu
AÐFERÐ
Byrjið á að búa til deigið. Blandið saman sykri og eggjarauðum þar til blandan verður létt og bætið síðan við smá vatni.
Blandið saman hveiti og smjöri sem búið er að skera niður í litla bita þar til blandan verður sandkennd.
Blandið síðan eggjablöndunni saman við hveitið og hnoðið í deig.
Því næst er deigið flatt út með kökukefli og sett í form. Skerið af endanum á deiginu þegar það er komið í formið svo það passi í formið og stingið svo göt á botninn með gaffli.
Setjið bökunarpappír ofan á deigið í botninum og setjið svo t.d. baunir eða hrísgrjón ofan á bökunarpappírinn og bakið í 20–25 mínútur við 180 gráður.Búið næst til karamelluna en þá byrjið þið á að brúna sykur í potti. Leyfið honum að bráðna alveg en passið að hann fari ekki að brenna.
Bætið rjómanum saman við í mjórri bunu og passið að hræra vel á meðan. Þegar karamellan hefur þykknað er smjörinu, saltinu og súkkulaðinu bætt saman við og brætt þar til allt er komið vel saman.
Þeytið þar næst rjómann. Byrjið á að þeyta saman mascarpone, flórsykur og vanillu. Þeytið þar til blandan er orðin létt í sér og búin að slétta úr sér.
Bætið rjómanum saman við í mjórri bunu og þeytið þar til þið eruð komin með léttþeyttan rjóma sem heldur sér vel. Varist að ofþeyta því þá gæti rjóminn farið að skilja sig.
Setjið karamelluna í botninn á tartarskelinni og bananasneiðar ofan á karamelluna. Setjið rjóma yfir bananann og annaðhvort saxað súkkulaði eða Freyju súkkulaðispæni🍫

