Spesíur

EINFALDAR OG FLJÓTLEGAR SMÁKÖKUR SEM ERU ALGJÖR FREYJU KLASSÍK. FULLKOMNAR MEÐ KAFFIBOLLANUM OG ÓMISSANDI Á JÓLABORÐIÐ

Fyrir: 30 kökur | Tími: 30 mín | Erfiðleikastig: Auðvelt

Spesíur eru uppskrift sem upprunalega var alltaf gerð með Freyju dropum. Nú þegar Freyju droparnir eru komnir í nýjar umbúðir en hafa haldið sínum klassíska stíl er tilvalið að endurvekja þessa yndislegu uppskrift. Mamma hefur alltaf gert þessa uppskrift og var hún í raun kveikjan að samstarfinu okkar, enda voru Freyju droparnir alltaf til í bakstursskúffunni á mínu heimili. Nú gera mágkona mín og mamma hennar líka alltaf spesíur svo litlu frænkur mínar alast upp við þær úr öllum áttum og uppskriftin er alls staðar í fjölskyldunni.

INNIHALD

200 g smjör, við stofuhita

75 g flórsykur

250 g hveiti

1 poki Freyju súkkulaðidropar

AÐFERÐ

  1. Setjið smjör og flórsykur í hrærivélaskál og hnoðið saman þar til blandan er komin vel saman.

  2. Bætið hveitinu saman við og hnoðið þar til deigið er komið saman og orðið mjúkt og meðfærilegt.

  3. Setjið deigið á borð og mótið það í kúlu með höndunum.

  4. Skiptið deiginu í fjóra jafna hluta.

  5. Rúllið hvern hluta í jafna lengju. Vefjið lengjurnar inn í sellófan eða bökunarpappír og setjið í kæli í að minnsta kosti 1 klukkustund, eða yfir nótt.

  6. Forhitið ofninn í 180°C með blæstri.

  7. Skerið deiglengjurnar í jafnar sneiðar og raðið þeim á bökunarplötu klædda bökunarpappír.

  8. Bakið við 180°C með blæstri í 10–12 mínútur. Hægt er að baka tvær plötur í einu í flestum ofnum.

  9. Takið kökurnar úr ofninum og setjið strax einn súkkulaðidropa ofan á hverja köku á meðan þær eru enn heitar.

  10. Ekki bíða með súkkulaðið því hitinn frá kökunum hjálpar súkkulaðinu að festast.

  11. Leyfið spesíunum að kólna alveg á plötunni þar til súkkulaðið hefur storknað.

Previous
Previous

Draumalakkrístoppar

Next
Next

Vanilluhringir