Súkkulaði jólatré

MEÐ SALTSTÖNGUM, KÖKUSKRAUTI OG FREYJU SUÐUSÚKKULAÐI, KRAKKAVÆN JÓLAUPPSKRIFT SEM ALLIR GETA TEKIÐ ÞÁTT Í AÐ GERA

Fyrir: 10–12 jólatré | Tími: 45 mín | Erfiðleikastig: Mjög auðvelt

Þessi skemmtilega uppskrift er fullkomin fyrir litlar hendur og tilvalin í notalega samverustund um jólin. Leyfið krökkunum að sjá um skreytingarnar og hafa gaman af. Hægt er að pakka hverju jólatré fyrir sig í sellófan og nota sem lítið heimagert jólakonfekt eða jólagjöf til ömmu og afa.

INNIHALD

200 g Freyju suðusúkkulaði

10–12 saltstangir

Rís Kúlur

Kökuskraut

AÐFERÐ

  1. Brjótið Freyju suðusúkkulaðið í litla bita og setjið í örbylgjuþolið ílát. Bræðið í 20–30 sekúndna lotum og hrærið vel á milli þar til súkkulaðið er silkimjúkt og alveg bráðið.

  2. Setjið bökunarpappír á bakka eða plötu. Raðið saltstöngunum á pappírinn með góðu bili á milli.

  3. Setjið brædda súkkulaðið í sprautupoka. Sprautið súkkulaðinu í sikksakklínur yfir saltstöngina. Byrjið á að gera breiðari línur neðst og mjórri eftir því sem þið farið ofar, þannig að það myndist lítið jólatré.

  4. Á meðan súkkulaðið er enn mjúkt er kökuskrautinu raðað yfir trén og Rís kúla sett á toppinn eins og toppur á jólatrénu.

  5. Setjið bakkann í kæli í 20–30 mínútur, eða þar til súkkulaðið hefur storknað.

Previous
Previous

Jólarís-ostakaka