SÚKKULAÐIKAKA DRAUMA ÞINNA
FULLKOMIN MEÐ ÍSKÖLDU MJÓLKURGLASI
INNIHALD
Súkkulaðikaka
270 g hveiti
400 g sykur
100 g kakó
10 g lyftiduft
5 g matarsódi
5 g salt
300 g sýrður rjómi
240 ml vatn
120 ml olía
2 stk egg
Krem
400 g smjör við stofuhita
120 g kakó
450 g flórsykur
2 msk uppáhellt kaffi (kælt)
200 g rjómi við stofuhita
100 g Freyju suðusúkkulaði
AÐFERÐ
Byrjið á að stilla ofninn á 170C og undirbúa þrjú eins kökuform með því að smyrja hliðarnar og setja smjörpappír í botninn á forminu.
Hrærið saman hveiti, kakó, salt, lyftiduft, sykur og matarsóda og setjið til hliðar.
Í annarri skál er sýrðum rjóma, olíu, vatni og eggjum hrært saman.
Blandið nú blautefnunum og þurrefnunum saman og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
Skiptið deiginu jafnt milli formanna og bakið í u.þ.b 25-30 mínútur.
Á meðan kökubotnarnir kólna er kremið búið til. Byrjið á að bræða súkkulaðið og setja til hliðar.
Þeytið næst smjörið þar til það verður létt og ljóst.
Bætið kakóinu saman við og þeytið áfram í 2-3 mínútur.
Að lokum er flórsykrinum, súkkulaðinu, rjómanum og kaffinu bætt saman við og þeytt áfram þar til þið eruð komin með létt og silkimjúkt krem.
Smyrjið næst kreminu jafnt á milli allra botnanna og staflið kökunni saman. Að lokum er kakan skreytt fallega – njótið!