Heitar súkkulaðibitakökur með ís 🍫🍪🍦
INNIHALD
170 g brúnað smjör
200 g púðursykur
50 g sykur
1 egg + 1 eggjarauða
1 tsk. vanilla
220 g hveiti
3 g matarsódi
3 g salt
100 g Freyju mjólkursúkkulaðidropar
200 g saxað suðusúkkulaði
AÐFERÐ
Brúnið smjörið þar til það er orðið karamellukennt og toppurinn er ennþá gulur en botninn er farinn að brúnast.
Hrærið saman sykurinn, púðursykurinn og smjörið.
Bætið egginu, eggjarauðunni og vanillunni saman við og hrærið vel.
Hrærið næst saman hveitinu, saltinu og matarsódanum og hrærið deigið saman með sleif eða sleikju þar til allt hveitið hefur blandast vel saman við.
Bætið súkkulaðidropunum og saxaða suðusúkkulaðinu saman við og blandið vel saman.
Kúlið deigið í jafnstórar deigkúlur og kælið í a.m.k. 30 mínútur til að fá bæði betra bragð og betri útkomu eftir bakstur.
Stillið ofninn á 180*C blástur.
Setjið súkkulaðikökurnar á ofnplötu með bökunarpappír með góðu millibili.
Bakið í 8–12 mínútur eða þar til kantarnir eru bakaðir og miðjan er ennþá mjúk.
Setjið sjávarsalt yfir og leyfið að kólna rétt þar til þið getið skóflað kökunum upp með spaða.
Setjið ís í skál og setjið súkkulaðibitaköku yfir ísinn, leyfið ísnum að bráðna og kökunni að bráðna yfir ísnum og njótið í botn!

