Hindberja- og lakkrísdöðlugott✨🖤🩷

INNIHALD

200 g smjör

450 g saxaðar döðlur

120 g púðursykur

1 poki Freyja Djúpur Kurl

50 g frosin hindber

100 g Rice Krispies

200 g Freyja lakkrís- og hindberjaplata

50 g Freyja suðusúkkulaði

150 g rjómi

AÐFERÐ

  1. Setjið bökunarpappír í kökuform sem er um 20 x 30 cm að stærð.

  2. Bræðið smjörið í stórum potti við meðalháan hita.

  3. Þegar það er bráðið má bæta döðlum og púðursykri saman við og leyfa að malla við meðalhita þar til döðlurnar hafa bráðnað og blandan minnir á karamellu.

  4. Bætið Rice Krispies og svo kurlinu í pottinn og blandið vel saman.

  5. Dreifið frosnum hindberjum í botninn á forminu og setjið svo döðlublönduna í formið og þjappið og jafnið vel. Geymið í frysti á meðan þið bræðið súkkulaðið.

  6. Bræðið lakkrís og hindberjasúkkulaði, suðusúkkulaði og rjóma saman við vægan hita. Hellið næst súkkulaðinu jafnt yfir döðlublönduna og setjið í frysti aftur í um 20 mínútur.

  7. Takið síðan út, lyftið blöndunni upp úr forminu á bökunarpappírnum og skerið niður í munnstóra bita.

  8. Geymið í kæli eða frysti þar til þið ætlið að njóta bitanna.

Previous
Previous

Heitar Súkkulaðibitakökur með ís 🍫🍪🍦

Next
Next

Súkkulaðibrownies með Krispí Rís og súkkulaðifudge kremi🍫💚