Draumalakkrístoppar
EINFALDIR OG ÓMÓTSTÆÐILEGIR MARENGSTOPPAR MEÐ FREYJU LAKKRÍS DRAUMI
Fyrir: 25–30 toppar | Tími: 30 mín | Erfiðleikastig: Auðvelt
Það eru ekki margir Íslendingar sem þekkja ekki klassísku lakkrístoppana sem flestir baka um jólin. Hér er uppskriftin sem er aftan á Djúpur lakkrískurlinu, en þetta skiptið með Freyju Draum! Afskaplega einföld uppskrift, en hér er líka leynihráefni sem hjálpar til við að topparnir falli ekki.
INNIHALD
3 eggjahvítur
200 g sykur
1 tsk kartöflumjöl
150 g Freyju mjólkursúkkulaðidropar
150 g Freyju Drauma bitar, gróft saxaðir
AÐFERÐ
Forhitið ofninn í 170°C með blæstri og klæðið bökunarplötu með bökunarpappír.
Stífþeytið eggjahvíturnar þar til þær eru orðnar léttar og loftkenndar.
Bætið sykrinum smám saman saman við á meðan þeytt er. Þeytið áfram þar til marengsinn er stífur, glansandi og sykurinn hefur blandast vel saman við.
Saxið Freyju Drauma bitana gróft.
Blandið Draumabitunum, kartöflumjölinu og Freyju mjólkursúkkulaðidropunum saman í sér skál.
Blandið súkkulaði- og lakkrísblöndunni varlega saman við marengsinn með sleikju. Hrærið aðeins þar til allt hefur blandast saman. Passið að hræra ekki loftið úr marengsnum.
Setjið deigið í litlum skömmtum á bökunarplötuna með teskeið. Hafið gott bil á milli toppanna þar sem þeir geta aðeins runnið út við bakstur.
Bakið í miðjum ofni í 10–14 mínútur, eða þar til topparnir eru orðnir fallega gylltir að utan en enn mjúkir að innan.
Leyfið toppunum að kólna á plötunni í nokkrar mínútur áður en þeir eru færðir yfir á grind.

