Freyjukakó

MEÐ FREYJU RJÓMAKARAMELLUM OG FREYJU SUÐUSÚKKULAÐI, SYKURPÚÐUM OG PIPARKÖKUM

Fyrir: 4 | Tími: 20 mín | Erfiðleikastig: Auðvelt

Þetta er hin besta lúxusútgáfa af heita súkkulaðinu sem við elskum öll í kringum jólin. Freyju karamellur fá að skína skært í þessari sætu, hlýju útgáfu af heitu súkkulaði sem er fullkomið í jólabrönsinn eða eftir góðan dag í snjónum með fjölskyldunni.

INNIHALD

1 L nýmjólk

200 g Freyju suðusúkkulaði, saxað

120 g Freyju rjómakaramellur

¼ tsk salt

½ tsk vanilludropar

1 msk rjómi

Skreyting

Þeyttur rjómi

Nokkrar Freyju karamellur, saxaðar

Smá kanill

Piparkökumylsna

Litlir sykurpúðar

AÐFERÐ

  1. Setjið mjólk og rjóma saman í potti og hitið rólega þar til blandan er orðin heit en ekki farin að sjóða.

  2. Bætið söxuðu súkkulaðinu og Freyju karamellunum út í.

  3. Hrærið stöðugt þar til bæði súkkulaðið og karamellurnar eru alveg bráðnaðar og súkkulaðið er orðið silkimjúkt.

  4. Bætið salti og vanillu saman við.

  5. Hellið í bolla og toppið með þeyttum rjóma, söxuðum Freyju karamellum, kanil, sykurpúðum og smá piparkökumylsnu.

Previous
Previous

Besta Súkkulaðikakan

Next
Next

Sörur Elenoru