Mandarínu- & appelsínuís

RJÓMALAGAÐUR HEIMAGERÐUR ÍS MEÐ APPELSÍNUBERKI, FREYJU ROMMÝ SÚKKULAÐI OG FREYJU JÓLASÚKKULAÐI MEÐ MANDARÍNUPERLUM

Fyrir: 8–10 | Tími: 30 mín | Erfiðleikastig: Miðlungs

Þessi ís er svolítið meira fullorðins. Rommý er mjög nostalgískt nammi en það er súkkulaðið sem mamma elskaði og elskar enn. Hún fékk sér Rommý á ferðalagi um Ísland á sumrin, og við fínni tilefni því það var sparisúkkulaði fyrir fullorðna fólkið. Þessi ís er silkimjúkur og mandarínubragðið passar fullkomlega saman við Rommý-bragðið.

INNIHALD

Ís

3 stk. eggjahvítur

3 stk. eggjarauður

500 ml rjómi

200 g sykur

Fínt rifinn börkur af 2 mandarínum

Fínt rifinn börkur af 1 appelsínu

2 msk. ferskur appelsínusafi

1 tsk. vanilludropar

100 g Freyju Rommý, grófsaxað

100 g Freyju jólasúkkulaði með mandarínuperlum, grófsaxað

Súkkulaðisósa

100 g Freyju Rommý

150 ml rjómi

25 g smjör

Örlítið salt

AÐFERÐ

Ís

  1. Saxið bæði Freyju Rommý og jólasúkkulaðið gróft.

  2. Þeytið rjómann í skál þar til hann er léttþeyttur. Passið að þeyta hann ekki of mikið.

  3. Léttþeytið eggjahvíturnar í hreinni skál. Bætið sykrinum smám saman saman við og þeytið áfram þar til blandan er orðin stíf og glansandi og minnir á marengs.

  4. Í þriðju skálinni þeytið þið eggjarauðurnar þar til þær eru ljósar, léttar og hafa tvöfaldast í stærð.

  5. Hrærið mandarínuberki, appelsínuberki, appelsínusafa og vanillu saman við eggjarauðurnar.

  6. Blandið eggjarauðublöndunni varlega saman við þeytta rjómann með sleikju.

  7. Blandið marengsblöndunni varlega saman við með sleikju. Reynið að halda sem mestu lofti í blöndunni svo ísinn verði léttur og mjúkur.

  8. Hrærið söxuðu Freyju Rommý og jólasúkkulaði með mandarínuperlunum varlega saman við.

  9. Setjið ísblönduna í ílát sem hægt er að loka og frysta. Stráið smá af hvoru súkkulaði yfir toppinn og frystið í að minnsta kosti 5–6 klukkustundir, helst yfir nótt.

  10. Takið ísinn úr frystinum um 10–15 mínútum áður en hann er borinn fram svo hann mýkist aðeins.

Rommý-súkkulaðisósa

  1. Hitið rjómann í potti við vægan hita þar til hann er vel heitur, en passið að láta hann ekki sjóða.

  2. Takið pottinn af hitanum og bætið söxuðu Rommý súkkulaðinu saman við.

  3. Hrærið þar til súkkulaðið er alveg bráðið og sósan orðin slétt.

  4. Bætið smjöri og örlitlu salti saman við og hrærið þar til sósan er glansandi og silkimjúk.

Previous
Previous

Vanilluhringir

Next
Next

Kryddkaka