Kryddkaka

ILMANDI OG MJÚKA KRYDDKAKAN SEM VIÐ ÞEKKJUM ÖLL, EN Í ÞETTA SKIPTI MEÐ FREYJU SUÐUSÚKKULAÐI

Fyrir: 8–10 sneiðar | Tími: 1 klst | Erfiðleikastig: Auðvelt

Þessi uppskrift hefur fylgt mér síðan ég þegar ég lærði bakarann. Hana erfði ég frá Rúnari yfirbakara sem kenndi mér svo margt, enda hef ég alltaf litið upp til hans með stjörnur í augunum. Þessi kryddkökuuppskrift er einfaldlega sú besta, og ein af mínum allra uppáhaldsuppskriftum yfir höfuð. Freyju Suðusúkkulaðið gerir hana alveg extra næs! Best er að borða hana ylvolga, svo smjörið bráðni yfir sneiðinni og kakan í munninum.

INNIHALD

100 ml mjólk

40 g smjör

120 g hveiti

110 g sykur

1 egg

5 g matarsódi

5 g kanill

3 g negull

3 g engifer

2 g salt

50 g sykur

25 ml vatn

150 g Freyju suðusúkkulaði dropar

Möndluflögur, til að strá yfir

AÐFERÐ

  1. Forhitið ofninn í 180°C.

  2. Spreyið formkökuform með matarolíuspreyi og klæðið það með bökunarpappír svo auðveldara sé að taka kökuna úr forminu eftir bakstur.

  3. Bræðið smjörið í potti.

  4. Bætið mjólkinni saman við smjörið og hitið að suðu. Takið af hitanum og leyfið blöndunni að kólna aðeins áður en haldið er áfram.

  5. Setjið 50 g af sykri á litla pönnu og bræðið við vægan hita. Leyfið sykrinum að dökkna vel þar til hann verður dökkbrúnn og ilmandi.

  6. Hellið 25 ml af vatni varlega og rólega saman við sykurinn. Hrærið stöðugt með trésleif á meðan þar til karamellan hefur leyst upp og blandan er orðin slétt.

  7. Farið varlega – karamellan verður mjög heit þegar vatninu er bætt út í.

  8. Setjið smjör- og mjólkurblönduna, hveiti, egg, 110 g af sykri, matarsóda, kanil, negul, engifer og salt í hrærivélaskál.

  9. Hrærið saman þar til allt hefur blandast vel.

  10. Hellið sykurblöndunni rólega út í deigið á meðan hrært er. Hrærið þar til deigið er slétt og allt hefur blandast vel saman.

  11. Blandið að lokum suðusúkkulaðidropunum saman við.

  12. Hellið deiginu í formið og stráið möndluflögum yfir miðjuna.

  13. Bakið í 30–40 mínútur, eða þar til pinni sem stungið er í miðju kökunnar kemur hreinn upp.

  14. Leyfið kökunni að standa í nokkrar mínútur áður en hún er tekin úr forminu.

Previous
Previous

Mandarínu- & appelsínuís

Next
Next

Jólarís-ostakaka