Sörur Elenoru
KLASSÍSKAR ÍSLENSKAR SÖRUR MEÐ STÖKKUM MÖNDLUBOTNI, SILKIMJÚKU KAFFIKREMI OG HJÚP ÚR FREYJU SUÐUSÚKKULAÐI
Fyrir: 30–35 sörur | Tími: 1½–2 klst | Erfiðleikastig: Miðlungs
Að eilífu mínar allra uppáhalds jólasmákökur. Ég hef elskað þessar kökur síðan ég var bara lítil stelpa en mamma og besta vinkona hennar hittust öll jól í sörubakstur og ég fékk alltaf að vera með. Þessi uppskrift er extra einföld, þægileg og góð og ég gæti ekki mælt meira með henni.
INNIHALD
Botnar
240 g eggjahvítur
500 g möndlumjöl
420 g flórsykur
Krem
120 g eggjarauður
320 g mjúkt smjör
150 g síróp
30 g kakó
3 msk. uppáhellt, kalt instant-kaffi
50 g brætt Freyju suðusúkkulaði
1 tsk. vanilludropar
Hjúpur
200 g Freyju suðusúkkulaði
AÐFERÐ
Sörubotnar
Forhitið ofninn í 180°C með blæstri og klæðið bökunarplötur með bökunarpappír.
Stífþeytið eggjahvíturnar þar til þær eru orðnar stífar og hægt er að hvolfa skálinni án þess að þær leki úr henni.
Sigtið möndlumjöl og flórsykur saman.
Blandið þurrefnunum varlega saman við stífþeyttu eggjahvíturnar með sleikju. Reynið að halda sem mestu lofti í blöndunni.
Setjið deigið í sprautupoka og sprautið hringlaga botnum á bökunarplöturnar. Einnig má nota tvær teskeiðar til að móta botnana.
Bakið við 180°C með blæstri í 8–12 mínútur, eða þar til botnarnir eru fallega gullinbrúnir.
Leyfið botnunum að kólna alveg áður en kremið er sett á.
Kaffikrem
Þeytið eggjarauðurnar þar til þær eru orðnar léttar, ljósar og loftkenndar.
Hitið sírópið við vægan hita þar til það fer að sjóða. Hellið sírópinu í mjórri bunu út í eggjarauðurnar á meðan hrærivélin er í gangi.
Þeytið áfram þar til blandan hefur kólnað og skálin er köld viðkomu.
Bætið mjúka smjörinu saman við í nokkrum skömmtum og hrærið vel á milli.
Bætið kakói, köldu instant-kaffi, bræddu Freyju suðusúkkulaði og vanilludropum saman við.
Þeytið kremið vel í nokkrar mínútur þar til það er orðið létt, silkimjúkt og loftkennt.
Samsetning
Setjið kremið í sprautupoka eða notið teskeið til að setja kremið á flötu hliðina á sörubotnunum.
Smyrjið kremið með flötum hníf og mótið það í fallegan, örlítið þríhyrndan topp.
Setjið sörurnar í kæli eða frysti þar til kremið hefur harðnað vel.
Þetta skref er mikilvægt svo kremið bráðni ekki þegar sörunum er dýft í súkkulaðið.
Súkkulaðihjúpur
Bræðið Freyju suðusúkkulaðið yfir vatnsbaði.
Dýfið kremhlið sörunnar í brædda súkkulaðið þannig að kremið sé vel hjúpað.
Setjið sörurnar á bökunarpappír og leyfið súkkulaðinu að harðna.

